Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi. Við ræðum í þessu viðtali:

  • Hvað gerir ríkissáttasemjari? 
  • Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga? 
  • Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilvægasta form ákvörðunartöku.
  • Af hverju við erum ekki eins góðir samningamenn og við teljum okkur vera. 
  • Af hverju stærsta hindrunin sem við mætum í samningum er innra með okkur. 
  • Hvers vegna undirbúningur er sá þáttur sem mestu máli skiptir. 
  •  Við ræðum ólíka samninga og samningatækni þegar kemur að íbúðakaupum, kaupum bíl eða þegar við ráðum okkur í vinnu. 
  • Hættan þegar við verðum ástfanginn af einni lausn og mikilvægi þess að hafa fleiri valmöguleika.  Þar skaðast samningsstaða okkar. 
  • Af hverju fleiri valmöguleikar skipta svo miklu máli þegar við semjum og af hverju við eigum alltaf fleiri valmöguleika.  
  • Hvernig eigum við að undirbúa okkur fyrir laun?   
  • Af hverju okkur þykir erfiðara að semja fyrir okkur sjálf en aðra. 
  • Af hverju það skiptir lykilmáli á að við skiljum gagnaðilann í samningum. 

Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali. 

Bók Aðalsteins Samningatækni er hægt að fá hér.

Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Umboðsmaður skuldara . Innehållet i podden är skapat av Umboðsmaður skuldara och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.